Hugleiðingar

7.2.2010

Vetrarfrí

Frábær helgi að baki og vinnuvika framundan.  Nei, þarna skrifaði ég vitleysu..Það er engin vinnuvika framundan því ég er komin í vetrarfrí....tæpar þrjár vikur...  Og ég er sko sérdælis glöð með það.

Í þessu vetrarfrí á að gera alveg heilmargt, annað en að vera extra góð við bónda og börn.  En þó er það tvennt sem að á hug minn mest allann þessa dagana..fyrir utan það að skutla afkvæmum hálfan daginn, skemmta mér á fagnámskeiði í vinnunni og sjá um hefðbundin heimilisstörf.

Í fyrsta lagi þá eyðir frúin dágóðum tíma í helv...stærðfræðina því nú skal loksins skellt hvítu húfunni á sig í maí.   Er þó búin að lækka standarinn niður í fimm og er ákveðin í það að stefna ekki á tíu í stærðfræði.  Bara fimm.

Í öðru lagi þá er frúin farin að skipuleggja daginn sem að bóndinn elskulegur verður háaldraður.  Hér verður opið hús á milli þrjú og fimm, þann 6.mars, þar sem að bóndinn mun bjóða upp á hnallþórurur af stærstu gerð og ýmislegt annað sem að frúin hefur náð að láta vini og ættingja búa til.  En takiði eftir, þið heyrðuð þetta ekki frá mér, því bóndinn hefur harðbannað mér að auglýsa þennann viðburð. 

Lík þessu með einni af minni uppáhaldsmynd, tekin í villta vestrinu á því herrans ári 1996.

Skrifað 7.2.2010 kl. 22:19 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.1.2010

Nú verður það tveggja hæða kofi :O

Grundarfjörður er alltaf að komast í fréttirnar.  Núna komust þeir í fjölmiðla vegna þess að hér mældust mestu vindhviður á landinu.  Frúin varð voða lítið vör við þetta, stakk bara töppum upp í eyrun og svaf nóttina til enda.  Bóndinn kvartaði eitthvað en hélt sig þó uppí rúmi.  Táningurinn svaf lítið enda með áhyggjur af öllu utandyra.  Hann er sá sem að panikast ef að þvottur er úti á snúru og vindur eykst snögglega.

Daginn eftir sáum við að litli kofinn var fokinn.  Þessi kofi er búinn að vera uppspretta af ómældum gleðistundum, og hafa verið haldin ótal kaffiboð þarna inni.  Búið er að drullumalla fleiri kökur heldur en bakað hefur verið fyrir Bessastaði.  Þarna hefur dóttirin og heimalingarnir mínir eytt þúsundum tíma við að spjalla um allt milli himingeyma, um allt nema stráka :)  En svona er þetta. 

Dóttirin tók þetta nærri sér og ég sá hvernig að minningarnar streymdu fram í höfði hennar.  Hélt að dagurinn yrði ónýtur hjá henni.  En nei, eftir smávegis íhugun þá skælbrosti hún allan hringinn.  Sagði svo, já, nú er hægt að byggja tveggja hæða kofa, eins og mig langaði í.  Svo er það spurningin hversu langt hún kemst með föður sinn.  En ég mundi veðja á hana, því hún kemst mikið lengra með bóndann heldur en frúin sjálf :)



Skrifað 26.1.2010 kl. 7:05 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2010

Sunnudagur til leti

Þetta helgarfrí frúarinnar átti að fara í það að sitja og læra stærðfræði.  Sem eru skilyrði þess að frúin útskrifist í vor.  En einhvern veginn endar það svo að stærðfræði bókin opnast ekki.  Í staðinn er gert eitthvað sem að alveg hefði getað beðið.  Svo er líka óratími sem fer í afar uppbyggilega hluti.  Eins og til dæmis facebook.  Auðvitað tekur það tíma að sjá um uppskeruna í farmville og farmtown, svo þarf að gefa kettinum í petville og fiskunum í fishville.  Svo má ekki gleyma því að það er nauðsynlegt að fletta yfir uppfærslur, og kommenta ef að maður nennir.  Þarna er nú farinn heill dagur sem hefði átt að fara í stærðfræði grýluna.  En ég geri þetta bara í næsta helgarfríi.

Helgin góð að öðru leiti.  Þorramatur hjá smiðnum og fjölskyldu í gærkveldi.  Góður matur og svo vel út látinn að við erum að fara aftur á eftir til að klára hann.  Ekki slæmt það.  Bóndinn náði meira að segja að stoppa i öðru húsi og smakka á landa.  Sælusvipur sem að fylgdi því glasi.  Kvöldið endar svo með norska þættinum.  Snilld, þó ég muni aldrei hvað hann heiti.  En enda þetta á myndum að heimilismeðlimum.

Hér eru heimilisdýrin endalaust sérvitur.  Yngsti meðlimurinn, hún Guffa litla, fellur vel inn í þann hóp
Hér er Dísa Dreki búin að króa litlu inn í horn, og í hvert skipti sem að hún hreyfði sig þá hvæsti sú stóra.  Núna er hún aftur á móti aðeins að eflast og farin að taka á móti.  Jú, ekki bara taka á móti, heldur farin að elta þá stóru út um allt hús. 


Hérna er Guffa á uppáhaldssvefn stað sínum.  Frúin er nú ekki neitt ánægð með hann, enda hefur hún ósjaldan breytt forsíðunni, og ekki kann frúin að laga það.




Hér kemur svo ein af Blómu og Sprett, sem síðar reyndust vera Blómi og Sprettur.  Hér eru þeir í nýja búrinu sem að þau feðgin smíðuðu um jólin.  Og borða uppáhaldsmatinn sinn, bygg frá Dalsmynni.  Já, það er dekrað við dýrin hér.


Þessi hér er sérstaklega fyrir hann Sjonna í Danaveldi.  Þetta er hann tvíbiti.  Sjonni bar þennann litla titt heim í göngunum, enda afar smár.  Þegar að bóndinn ætlaði síðan að slátra honum, þá kom dóttirin askvaðandi, trítilóð, og sagði að það væri nú óþarfi að drepa hann, hann væri ekki nema tveir munnbitar.  Bóndinn sleppti honum út, enda vanur að hlýða dóttirinni.  Hann heitir nú tvíbiti, er geldur og bíður frekari dómsdags.



Hér er svo ein af þeim feðginum.  Sátt við lífið og tilveruna, enda úti, þar sem að þeim líður best. 



Endum svo á einni hrútamynd.  Þetta eru þeir Höður, Klaki og Friðrik.  Friðrik er geldur heimalingur og heldur að hann sé Kasanóva.  Fyrir þá sem að ekki eru kunnugir, þá eru verða hornin á hrútunum svona þegar að þeir eru geldir. 






Skrifað 23.1.2010 kl. 23:49 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.1.2010

Fallegu börnin mín.

Varð bara að láta mynd af þeim hér, enda eru þau alltaf svo ánægð þegar að teknar eru myndir af þeim....  Kaldhæðni....Þegar að ég tek hópmynd þá er yfirleitt alltaf þjáningarsvipur á þeim elsta, táningurinn þarf helst að sýna hvíturnar í augunum en dóttirin er til fyrirmyndar, svona eins og móðirin er alltaf. 

Skrifað 22.1.2010 kl. 3:33 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.1.2010

Gleðilegt nýtt ár !!

Já, það var þá loksins að frúin settist niður við skriftir.  Búið að taka  langan tíma og er ekki nokkur afsökun sem hægt er að finna fyrir því.  Hef bara ekki fengið heilasellurnar til að virka.  Vil byrja á því að bjóða ykkur velkomin inn í árið 2010, árið sem að við munum alltaf koma til með að muna eftir.  Svona eins og að ég man alltaf eftir vetrinum 1994-95.  Þá var ég með orkuboltann minn hann Jóhann Skúla innanborðs, og það snjóaði allan veturinn.  Frúin þurfti að byrja alla morgna á því að kappklæða frumburðinn og svo var rennt sér á þotu niður afleggjarann, því hann var ófær í langan tíma.  Þá voru snjósleðamenn glaðir.  Ja, þeir fáu sem að áttu sleða, því 2007 fílingurinn var ekki alveg kominn í landann.  En svona er þetta.

Þar sem að klukkan er rúmlega sex að morgni á þessarri annars spjallmiklu næturvakt, þá verða skrifin stutt.  Ætla þó að lofa því að setjast oftar við bullskriftir :O)  Ætla að skella hér inn þrem myndum af fjárhúsunum, sem að bóndinn á Mýrum tók uppá því að byggja á því herrans ári 2009.  Þegar að einn lítill nagli kostaði meira heldur en tyggjókúla.  Já, það má segja að við höfum farið langt fram úr fjárframlögum frúarinnar.   En með því að tæma undan öllum koddum, losa smáklinkið úr kökuboxum, fara í leynisjóð húsfrúar, tæma sparisjóðsbækur, skera niður bjórkvóta bóndans og láta heimilismeðlimi drekka vatn með matnum, þá hafðist þetta. 

Og þvílíkur munur.  Bóndinn brosir allan hringinn enda kóngur í ríki sínu þarna úti, laus við mal frúarinnar og icesafe umræðu í útvarpinu. Það á eftir að klæða húsin að innan og einnig að klára ýmislegt, sem hægt er að gera með tíð og tíma.   Enda bóndinn ekki kallaður sérvitrungur fyrir ekki neitt.  Skipulag, skipulag.  Myndir af byggingunni, frá byrjun og til enda, eru nú komnar í albúmið á síðunni.  Endilega skoða.







Árið

Skrifað 21.1.2010 kl. 5:58 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.11.2009

29 dagar til jóla

Jólaskrautið komið niður.....Bóndinn fór upp á loft og náði í það, enda sá hann að frúin var að fara yfir um af spenning.  Ein sería komin upp og fleiri á leiðinni.  Nú breytist húsið í jólhús og jólaskröggarnir mega bara sleppa því að koma í heimsókn.  Ég elska jólaundirbúninginn.


Skrifað 24.11.2009 kl. 22:48 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2009

30 dagar til jóla

Frúin finnur hvernig spenningurinn magnast....uppáhaldstími ársins er að skella á...jólin og allar skreytingarnar í kringum það.  Þetta er sá tími sem að við sem elskum jólin ráðum ríkjum, jólafílupúkarnir mega halda sig innan dyra, þar sem enginn heyrir í þeim.

Eins og áður hefur verið skrifað, þá er allt jólaskrautið fast uppi á háalofti. Frúin nær því ekki niður nema með hjálp bóndans.  Aðalástæðan er sú að afturendi frúarinnar hefur stækkað meðan að gatið á loftinu hefur staðið í stað.  En nú horfir til betri vegar.  Það er þó nokkur von til þess að bóndinn fáist uppá loft í kvöld, til að ná í alla kassana "okkar" fimmtán.  Eða voru þeir kannski orðnir sextán?  Ætla þó að bíða smávegis með að skella þessu upp en stefni að föstudeginum.  Nema að það verði miðvikudagurinn?  Alla vegana má það ekki verða mikið seinna  :O)

Skrifað 23.11.2009 kl. 7:19 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.11.2009

31 dagur til jóla

Þetta náttúrulega gengur ekki, að blogga ekki nema endrum og eins.  En heilasellur frúarinnar hafa einfaldlega ekki verið að ganga á öllum fjórum, ætla ekki að fara nánar út í það, en nei, frúin er ekki með skammdegisþunglyndi.

Það yrði þó enginn hissa á því að maður fengi þunglyndiskast, því að mér finnst allar fréttir vera neikvæðar.  Að minnsta kosti flestar fréttir.  Er því löngu hætt að horfa á fréttir, en fer þess í stað á netið og pikka þar út það sem að mér langar til að hlusta á.

Ég skil stundum ekki fréttirnar.... hvernig hægt er að túlka einfalda hluti á ótal vegu.... hvernig stendur á því að maður er hættur að heyra fréttir af "útrásarvíkingunum"........en heyrir þess oftar fréttir af niðurfellingum á skuldum þeirra........Skil heldur ekki samhengið í því að ekkert er gert til að auka atvinnu og fleiri missa atvinnu ......sem þýðir að fleiri fara á atvinnuleysisskrá......sem þýðir meiri peningur sem fer í það að borga fólki fyrir að vera heima að horfa á leiðarljós.......sem hlýtur að þýða það að fleiri lendi í þunglyndi......sem er eðlileg afleiðing á því að horfa of mikið á leiðarljós, missa vinnuna og auka skuldirnar.........Nú á að auka skattana, hækka matvörur og minnka þjónustu, á sama tíma og ekkert er gert til að minnka atvinnuleysið.............Skil ekki, skil ekki, skil ekki....Nú væri gott að vera með fimm háskólagráður....eða mundi maður þá skilja þetta?  Neehh, held ekki.  Ætla bara að ljúka þessum skil ekki texta á því að segja að frúin vaknaði einn daginn með algengasta frasa Íslands á vörunum.....Hagsmunir heimilanna,  var ekki vel sofin þá!

Héðan er annars allt gott að frétta, fyrir utan auðvitað skilningsleysi frúarinnar.  Skellti inn hér tveim myndum.  Sú fyrsta er af nýjasta heimilismeðlim fjölskyldunnar, sem hefur hlotið nafnið Blíða.  Hún verður eins og sést, fordekruð eins og hin dýrin.  Hún sefur þó ennþá úti hjá Bröndu gömlu, en fær svo að vera inni mestan hluta dagsins.  Dísa dreki er hálfhrædd við hana, en Embla fylgist mikið með henni.  Hún er þó sátt meðan að bóndinn klappar Blíðu ekki of mikið.

Hér er svo hann Friðrik sauður, konungur hrútanna.  Hann er búinn að gera þá svo spaka að þeir gætu komið með á jólaball. 



Svo fylgir hér með ein af fallegu strákunum mínum.  Tekin fyrir svo allt of mörgum árum, en þeir eru sko jafn sætir í dag. 

Skrifað 22.11.2009 kl. 6:43 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.11.2009

41 dagur til jóla

Halló, það eru bara 41 dagur til jóla!!    Ótrúlega stutt.  17 dagar þangað til að ég fæ formlegt leyfi frá bóndanum mínum til að fara að skreyta.  Þá nær hann í jólakassana15 upp á þak.  Man þó ekki alveg hvort að þeir séu tæplega eða rúmlega fimmtán. 

Þessir jólakassar allar eru síðan geymdir uppi á lofti, og þar hefur bóndinn stjórnina.  Hann hafði gatið upp á loft það lítið að það rúmar ekki afturenda frúarinnar, og verður að byðja hann um að ná í allt sem geymt er þar.  Á gamla loftinu var það öðruvísi, frúin gat laumað sér viku fyrr og náð í einn jóladisk.  Bóndinn var búinn að ákveða þetta fyrir fram, er ég viss um.

Héðan er allt gott annars að frétta.  Frúin er afar blogglöt þessa dagana, enda eru nú að ganga í garð langleiðinlegustu dagar ársins, október og nóvember.  Mundi vilja afnema þá.  Finn alveg hvernig ég dett í súkkulaðikúrarómantískabíómyndarletikast.  En svo tekur desember við og þá fær maður adrealínkast. 

Læt þetta duga af blaðri, ætla að kíkja á gamlingjana mína , áður en næturvaktin klárast :O)  Læt þó fylgja með mynd af fjárhúsunum.  Staðnum þar sem að bóndinn eyðir öllum kvöldstundum sínum.  Já, minn tími mun koma. 




Hér er svo ein mynd af nýjustu dýrum dótturinnar.  Tvær kanínur sem fundust niðri í bæ,en einhver hafði verið svo leiðinlegur að láta þær út.  Draugspakar enda aldar upp inni.  Hér hverfur allt grænmeti úr ísskápnum og er þrifið meira hjá þeim, heldur en hér innan dyra.  Dóttirin var nú upptekin áður, en núna er engin tími afgangs, ekki einu sinni til að horfa á sjónvarpið:O)  En þetta er hennar val.


Skelli svo hér einni mynd af eðalkúknum.  Það er búið að hrekkja alla heimilismeðlimina á þessum heljar kúk.  Þar áður var búið að hrekkja flest alla á dvalarheimilinu, þ.e. starfsfólkið.  Það hafði verið bakað rúgbrauð, og það flaut uppúr.  Og úr því kom þessi flotti hrekkikúkur.  Hann fæst til leigu, ef einhverjum langar til að hrekkja einhvern heima við?  Verð að bæta því við að bóndinn var flottur þegar að hann fór svartbölvandi með áhöld og ætlaði að taka kúkinn upp eftir hel......böl.....andsk.....hundana.



Skrifað 12.11.2009 kl. 6:33 af Anna Júlía

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 126
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 162814
Samtals gestir: 44804
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 18:45:49

Tenglar

Frúin

Um:

Frúin býr í sveit, á mann og þrjú afkvæmi, dekraðan kött og stofuhund, annan kött sem fær ekkert að borða og annan hund sem geltir að álfum. Frúin vinnur meðan að aðrir sofa og sefur meðan að aðrir vinna. Frúin ætlar að fara í framboð seinna meir. Frúin ætlar líka í megrun seinna meir, hvort það verður á dánarbeðinu kemur í ljós. Frúin stefnir einnig að því að ná sér í útskriftarhúfur af einhverri gerð.

Uppáhalds bíómynd(ir):

Allar bíómyndir sem að innihalda hlátur, ást, fallega menn, eina feita konu og engar blóðslettur.

Uppáhalds tónlist:

Pet shop boys, of course, hlusta á allt nema Árna Johnsen og Mercedes Club.

Uppáhalds manneskjur:

Allar þær manneskjur sem sjá björtu hliðarnar í hverju sem er.

Uppáhalds matur:

Frúin er annáluð matmanneskja. Maturinn þarf helst að innihalda rjóma, súkkulaði, sósu og sætindi.

Eftirminnilegast:

Það borgar sig ekki að segja frá því!!