Gamanmál 2
GÍSLI ER DAUÐUR. Maðurinn í símanum varð svolítið vandræðalegur en sagði svo eftir smá hik, sko hérna, þú borgar nú hvort eð er fyrir sex orð svo má ekki bjóða þér að notfæra þér það? GÍSLI ER DAUÐUR, TOYOTA TIL SÖLU!
Erla, sérvitur húsfreyja með meiru á Skagaströnd, missti bónda sinn hann Gísla á dögunum. Kella hringdi suður í Fréttablaðið í þeim erindagjörðum að setja dánartilkynningu í blaðið eins og gengur.
Þegar hún hafði náð sambandi við réttu deildina og var spurð að því hvaða texta mætti bjóða henni að setja í greinina sagði hún:
Kella hugsaði sig um í smá tíma og sagði svo: jú,
Þessi er bara góður
J
Giftur maður átti í leynilegu ástarsambandi með eiknaritaranum sínum. Dag
einn þegar ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar þar sem
þau áttu villta eftirmiðdagsstund. Eftir öll lætin voru þau orðin
dauðþreytt og sofnuðu.
Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn byrjar
að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum sínum að fara með skóna
hans út og nudda þeim í grasið og moldina. Furðu lostin konan skilur ekki
alveg hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu að síður.
Hann skellti sér svo í skóna og keyrði heim.
,,Hvar hefuru eiginlega verið maður ?´´ spurði konan eiginmanninn þegar hann
kom inn um dyrnar. ,,Elskanég get ekki logið að þér, ég á í leynilegu
ástarsambandi
við einkaritarann minn og við erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag,
svo sofnuðum við
og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8.´´
Konunni varð litið á skónna hans og sagði: ,,Helvítis lygarinn þinn, þú ert
búinn að vera að spila golf í allan dag !!!
Ung stúlka, nýútskrifuð sem sjúkraþjálfari var í heimsókn hjá vinkonu sinni hér á Reyðarfirði um daginn. Vinkonurnar eru báðar áhugasamir golfleikarar og ákváðu að spila nokkrar holur á nýja golfvellinum. Þegar sjúkraþjálfarinn slær af tí-inu, þá geigaði höggið all hressilega. Kúlan stefndi beint á fjóra menn sem voru að spila á næstu flöt
Kúlan lenti í einum mannanna og hann hrundi samstundis niður og veltist um af kvölum, með báðar hendur í klofinu á sér. Konan þusti til mannsins og byrjaði strax felmtri slegin að biðjast afsökunar á þessu slysaskoti.
"Leyfðu mér að hjálpa þér, ég er sjúkraþjálfari og ég get örugglega minnkað verkinn eitthvað", sagði hún við manninn.
"Nei, nei", segir maðurinn, "Ég hlýt að jafna mig á nokkrum mínútum", en áfram lá maðurinn þó á jörðinni í fósturstellingu, með báðar hendurnar í klofinu, greinilega mjög þjáður.
>En
stúlkan var ákveðin og að lokum leyfði maðurinn henni að hjálpa sér. Hún snéri manninum varlega á bakið og tók svo blíðlega í hendur hans og lagði þær með síðunum. Svo byrjaði hún að losa um beltið á buxunum hans og smeygði annari hendinni inn fyrir buxnastrenginn. Hún þreifaði rólega í kringum kynfæri mannsins og tók svo ofurlétt um punginn og nuddaði hann varlega.
Maðurinn lyngdi aftur augunum og stundi.
Eftir dágóða stund spurði hún: "Hvernig líður þér, ertu eitthvað að skána?
Maðurinn opnaði augun og sagði: "Þetta er alveg rosalega gott.... en golfkúlan fór í þumalinn og ég held að hann sé brotinn".
Svona eru ekki allir sjóarar.
Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á bar.
Hún lyfti hægri handleggnum hátt upp, svo kafloðinn handarkrikinn blasti
við,
- benti yfir þéttsetinn barinn og spurði: "Er hér einhver karlmaður sem
vill bjóða konu í glas?"
Það sló þögn á mannskapinn, sem reyndi að leiða brussuganginn í henni hjá
sér.
Lítill sjóari, kófdrukkin og glaseygður sem sat við enda barborðsins, sló í
borðið og hrópaði: "Gefðu ballerínunni í glas"
Barþjónninn hellti í glasið og skessan þambaði úr því.
Hún sneri sér aftur að gestunum og með sama gassaganginum glennti hún loðinn
handarkrikann framan í þá og spurði:
"Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?"
Aftur var það litli, fulli sjóarinn sem skellti peningum á barborðið og
sagði "Gefðu ballerínunni aftur í glas"
Barþjónnin gekk til hans og sagði: Heyrðu kallinn minn - það er þitt mál ef
þú vilt borga vínið fyrir kjellinguna,
- en af hverju kallarðu hana alltaf ballerínu ?
"Ég fullyrði", svaraði fulli sjóarinn - "að kona sem getur lyft fætinum
svona hátt, hljóti að vera ballerína"
Þar sem Þorrablótin nálgast :-)
Ef maður tekur rollu, skellir afturfótum hennar ofaní stígvélin sín og
ríður henni, þá er maður kallaður Nonni me me (rolluríðari), alla ævi, hvar
sem maður birtist.
En ef maður drepur rollu, brennir á henni andlitið, sýður andlitið í heitu
vatni í nokkrar klukkustundir, hellir hvítri sósu yfir, sýgur úr henni augun
og sker úr henni tunguna, nagar af henni kjálkavöðvana og etur þetta allt
saman með grænum baunum, þá er maður bara Íslendingur í svaka stuði á
Þorrablóti og enginn spyr rolluna hvort henni fannst betra.
Nunna stígur upp í leigubíl.
Á leiðinni tekur hún eftir því að
leigubílstjórinn, sem er hrikalega myndarlegur, er stanslaust að horfa á hana.
Hún spyr hann af hverju hann stari svona. Hann svarar:
"Sko, mig langar svo að spyrja þig að einu, en ég er svo hræddur um að þú verðir reið." Hún svarar: "Sonur minn, ég verð ekki reið.Þegar maður er orðinn svona gamall og hefur verið nunna í svo langan tíma sér maður og heyrir ótrúlegustu hluti.
Ég er viss um að ég reiðist ekki."
"Ja, mig hefur alltaf dreymt um að kyssa nunnu."
Hún svarar: "Hmm, sjáum til hvað við getum gert í því. En það eru tvö skilyrði:
Þú þarft að vera einhleypur og kaþólskur."
Leigubílstjórinn er mjög spenntur og segir:
"Já, ég er einhleypur og kaþólskur." "Ókei", segir nunnan," stoppaðu á næsta stæði."
Nunna uppfyllir draum leigubílstjórans með kossi sem er betri en nokkuð sem hann hefur upplifað. En þegar þau eru komin aftur af stað byrjar hann að gráta.
"Elsku barnið mitt," segir nunnan, "því ertu að gráta? fyrirgefðu mér, en ég hef syndgað" Ég laug og verð að játa að ég er bæði giftur og lúterskur."
Nunnan segir: "Það er ekkert mál. Ég heiti Hjalti og er að fara á grímuball."
Gömul hjón eru í mat hjá kunningja fólki sínu. Eftir matinn fara konurnar inn í eldhús að spjalla en karlarnir sitja áfram í stofunni.
"Við fórum á frábæran veitingastað í gærkvöld sem þið verðið að prófa," segir annar þeirra allt í einu.
"Og hvað heitir hann?" spyr hinn.
Hann verður hugsi smá stund og getur bara ekki munað nafnið á veitingastaðnum. Loks segir hann: "Æj, hvað heita aftur blómin þarna..."
"Túlipanar?" spyr hinn.
"Nei," segir hann, "maður gefur þau oft þeim sem maður elskar."
"Rósir?"
"Hmmm," hugsar hann, "nei, ekki það. Er ekki eitthvað annað blóm sem maður gefur stundum þeim sem maður elskar?"
"Jú," segir hinn, "Liljur".
"Akkúrat, það var það. Takk," segir hann og snýr sér í átt að eldhúsinu: "Lilja mín, hvað hét aftur veitingastaðurinn sem við fórum á í gær?"
Vélin ótrúlega í apótekinu
Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn: "mér er alveg hrikalega illt í
olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis".
Félaginn sagði: "ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apóteki
sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig.
Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara
þvagsýni í vélinaog hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í
því, og
það kostar bara 500 kall".
Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið.
Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði 500
kallinn.
Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu.
Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð:
Þú ert með tennisolnboga.
Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um olnbogann og
forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og datt
allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun
ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman kranavatni, hundaskít úr hundinum
sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta
runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti
blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin byrjaði strax að blikka
ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftir farandi greiningu:
Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn er með
orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í
meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing.
Hættu svo að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!
Einn Góður í tilefni dagsins
Næst þegar þú ætlar að nota einnota Latex hanska þá er ekki annað hægt en að brosa þegar þú heyrir það sem hér fer á eftir:
Tannlæknirinn tók eftir að litla gamla konan sem var næst í stólinn hjá honum var ansi kvíðin svo hann ákvað að segja henni smá brandara til að róa hana.
Hann setti á sig hanskana og spurði um leið hvort hún vissi hvernig svona hanskar væru búnir til.
Nei sagði hún.
Jæja hélt hann áfram,
það er verksmiðja í Kanada sem er með stóran fullan tank af Latex efni og verkamennirnir þar dýfa höndunum í tankinn með efninu, láta svo efnið þorna og fletta síðan af sér hönskunum og láta þá í kassa merkta viðkomandi stærð.
Gömlu konunni stökk ekki bros.
Jæja það mátti reyna, hugsaði tannlæknirinn.
Fimm mínútum seinna á meðan viðkvæmur hluti tannaðgerðarinnar stóð yfir, fór gamla konan að skellihlæja.
Hvað er svona skemmtilegt sagði tannlæknirinn.
Ó! Ég fór allt í einu að velta fyrir mér hvernig smokkar væru búnir til.
Smá grin
Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.
Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.
Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum
Lexía 3:
Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin.
"Næst ég! Næst ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".
Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:
Heyrðu elskan - fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum
á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju
kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.
Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og
50 tommu flatskjá - en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið
með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !
Ég verð að játa að ég á skynsama konu : Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:
Ekki vandamálið : Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu !
Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !
- eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi.
Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!
Og þá fór allt í bál og brand..
Við konan mín lágum uppi í rúmi og horfðum á Villtu vinna milljón.
Ég snéri mér að henna og sagði, " Villtu gera do do ? "
Hún svaraði, " Nei"
Ég spurði, " Er þetta þitt lokasvar" ?
Hún leit ekki einu sinni á mig er hún svaraði " Já"
Ég sagði, "Þá langar mig að hringja í vinkonu"
og þá fór allt í bál og brand..
|
|
|
............................................................................
Ég spurði konuna mina, " Hvert langar þig að fara á brúðkaupsafmælinu okkar" ?
Mér hlýnaði um hjartarætur að sjá hvernig hún lifnaði öll við og horfði á mig
með aðdáun er hún svaraði,
"Einhvert sem ég hefi ekki farið lengi "
Með það í huga kom ég með uppástungu,
" Hvað með eldhúsið " ?
Og þá fór allt í bál og brand..
............................................................................
Síaðsta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henna, " Það er brjálað veður úti". Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax," Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri"
Og þá fór allt í bál og brand...
...........................................................................
Ég bauð konunni minni með í helgarferð til Boston um daginn og þar fórum við á fínt veitingarhús. Einhverra hluta vegan tók þjónninn fyrst pöntunina mín. Ég sagði, og var heldur rogginn með enskuna mina,
"I'll have the strip steak, medium rare, please."
He said, "Aren't you worried about the mad cow?""
Ég svaraði " Nah, she can order for herself."
Og þá fór allt í bál og brand..
...........................................................................
Við konan mín forum á árgangsmót í gamla skólanum míum. Þar sem við sátum tók konan mín eftir að ég horfði á konu á næsta borði. Kona þessi var vel drukkin og þambaði ótæpilega og röflaði við sjálfa sig milli glasa.
"Þekkir þú þessa konu" spurði konan mín.
"Já sagði ég, þetta er gömul kærasta og ég heyrði að hún hefði ferið að drekka svona eftir að ég sagði henna upp þarna um árið".
Konan mín leit á hana í forundran og sagði," hver hefði trúað því að hægt væri að hafa svona ómerkilegan atburði að fagnaðarefni í öll þessi ár".
Og þá fór allt í bál og brand..
..................................
Um daginn varð ég 67 ára og hætti þá að vinna. Ég fór til að ganga frá öllu í sambandi við ellilífeyrinn minn. Konan á skrifstofuni bað um að sjá ökuskírteynið mitt til að staðfesta aldurinn og þá uppgötvaði ég að veskið mitt hafði orðið eftir heima. Konan sagði að þetta væri í lagi, bað mig að hneppa frá þremur efstu tölunum á skyrtunni minn. Ég gerði það og er hún sá silfurgráa englahárið á bringunni á mér sagði hún að þetta væri nóg staðfesting fyrir hana.
Þegar heim kom sagði ég konunni minni frá þessu. Hún varð hálf örg. " Bölvaður endemis asni ertu maður, þú hefðir átt að láta buxurnar falla líka . Ég er viss um að þá hefðir þú fengið örorkubætur út á þennan ræfil þarna niðri".
Og þá fór allt í bál og brand..
Ráðherra útrásarvíkingur og kvensjúkdómalæknir sóttu námskeið í bifvélavirkjun. Lokavekefnið var að gera upp bílvél.
Ráðherrann réði ekki við vekefnið og gafst upp á öðrum degi.
Eftir fjóra daga hafði útrásarvíkingurinn náði að klára að setja vélina saman, en hún hrundi þegar hann setti hana í gang.
Kvensjúkdómalæknirinn skilaði sínu verki eftir hálfan mánuð, og fékk tíu fyrir verkefnið.
Prófdómarinn dáðist að verkinu en spurði lækninn: Hvers vegna varstu svona lengi að þessu? Ja sagði hann, þú ættir að prófa sjálfur að taka upp bílvél í gegnum púströr!
Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum.
Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á
öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og
nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af
þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti
sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan
handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo
góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á
atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.
Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem
lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná
skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo
góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp
heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.
Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur
niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka
og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við
græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná
þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að
setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".
Íslenski sjávarútvegsráðherrann hitti svissneska kollega sinn og spurði hann af hverju Svisslendingar væru með sjávarútvegsráðherra, það væri jú enginn sjór í kringum Sviss.
Svissneski ráðherrann svaraði að bragði með annarri spurningu:
"Hvað eruð þið að gera með fjármálaráðherra?".
Fríið í Jerúsalem:
Þau ákváðu að fara í frí til Ísrael, hann Jón og hún Gunna. Svoleiðis geta nú margir eldri borgarar gert sem enn eru nógu ern til ferðalaga. Margir héldu að Jón væri slakur til heilsunnar en aldeilis ekki hún Gunna. Á gamals aldri tuðaði hún og skammaðist í honum Jóni með meiri ákefð og dugnaði en nokkru sinni áður.
Jæja, svo við gerum nú langa sögu stutta, þá dó hún Gunna í Jerúsalem, fékk aldeilis óvænt hjartaáfall. Og skyndilega fengu eyru Jón langþráða hvíld og hann gekk út á hótelsvalirnar og leit hugsi upp til Golgata.
Þar sem þau hjón voru ekki með nægilegar tryggingar þá stóð Jón frammi fyrir fjárhagslegu vandamáli sem hann þurfti strax að leysa. Það kostaði nefnilega hátt á þriðja hundrað þúsund krónur að flytja líkið heim til Íslands en aðeins um fimm þúsund kall að jarða hana Gunnu í Landinu helga.
Jón sagðist vilja flytja hana Gunnu sína heim.
"Hvers vegna í ósköpunum ætlarðu að eyða þrjú hundruð þúsund kalli í flutning á líkinu heim til Íslands þegar þú getur sparað og grafið hana hér?" spurði náunginn frá Kirkjugörðum Jerúsalems og nágrennis.
"Jú," svaraði Jón. "Fyrir löngu síðan dó frægur náungi hér, var grafinn daginn eftir en þremur dögum síðar reis hann aftur upp frá dauðum. í hreinskilni sagt þá þori bara ég ekki að taka áhættuna á því með hana Gunnu mína!"
Ást-Losti-Hnapphelda
Það getur verið munur á því að elska, þrá eða vera genginn í hnapphelduna. Eftir hveitibrauðsdagana verður meiri stöðugleiki en þrátt fyrir það þarf það alls ekki að draga úr lostanum né ástinni.
Ást: Þegar þið farið í freyðibað saman.
Losti: Þegar þið farið í bað fyllt af hlaupi.
Hnapphelda: Þegar þið baðið afkvæmið.
Ást: Rómantískur kvöldverður við kertaljós.
Losti: "Verð ég að kaupa matinn fyrst?"
Hnapphelda: Fjölskyldutilboð á McDonalds.
Ást: Að gefa ástinni sælgæti.
Losti: Þú ert sjálft góðgætið.
Hnappheldan: Að skrapa sælgætið barnsins af gólfinu.
Ást: Kynlíf hvert kvöld.
Losti: Kynlíf fimm sinnum á nóttu (eða degi??).
Hnappheldan: Hvað er kynlíf?
Ást: Kvöld í leikhúsinu.
Losti: Kvöld á mótel Venus.
Hnappheldan: Kvöld á vídeóleigunni.
Ást: Franskt ilmvatn.
Losti: Grófur rakspíri.
Hnappheldan: "Það þarf að skipta á barninu."
Ást: Að lána elskunni þinni jakkann þinn.
Losti: "Ég veit hvernig við getum haldið á okkur hita."
Hnappheldan: Unglingsdóttir þín hefur fengið alla jakkana þína lánaða.
Ást: Tala og knúsa.
Losti: Rúlla sér á hina hliðina og steinsofna.
Hnappheldan: Að fara framúr til að þvo sér um hendurnar.
Ást: Langar ökuferðir í sveitinni.
Losti: Löng viðdvöl á útsýnisstað.
Hnappheldan: Langar ökuferðir með grenjandi börn í aftursætinu.
Einn góður!!
Maður nokkur var í leigubíl og pikkar í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar.
Leigubílstjórinn öskrar upp yfir sig, missir stjórn á bílnum, næstum því búinn að keyra í veg fyrir strætó, fer upp á gangstétt og stoppar örfáum sentímetrum frá búðarglugga.
Í nokkrar sec. er allt hljótt í bílnum. Síðan segir bílstjórinn: "Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur. Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!"
Farþeganum er illa brugðið en segir að lokum: "Fyrirgefðu ég vissi ekki að smá pikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum.."
"Æj, fyrirgefðu" segir bílstjórinn, "þetta er nú reyndar ekki þín sök.
Í dag er fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri, ég er búinn að vera að keyra líkbíl í 25 ár."
Hvernig létta eldri borgarar sér lífið?
Um daginn fórum við hjónin til dæmis niður í bæ og versluðum lítið eitt. Við vorum ekki nema 5 mínútur inni í búðinni. Svo þegar við komum út, var lögregluþjónn að skrifa sektarmiða.
Við gengum rakleitt til hans og ég spurði hvort hann væri ekki til í að gefa eldri borgurum landsins smá séns? Hann lét sem hann sæi okkur ekki og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, rétt eins og við værum ekki til.
Ég kallaði hann Nasistalöggu, möppudýr, fant og fúlmenni. Hann rétt leit til mín, greinilega öskureiður og skrifaði svo annan sektarmiða, því bíllinn var á of slitnum dekkjum.
Þá kallaði konan mín hann öllum íllum nöfnum, svo sem skíthaus, hálfita, sauðnaut og valdhrokagikk. Hann kláraði að skrifa þriðja sektarmiðann, því bíllinn var óskoðaður. Svona leið næsta korterið. við úthúðuðum lögreglumanninum og hann nánast fjölritaði sektarmiðana og stakk þeim þegjandi og hljóðalaust undir rúðuþurrkuna, en fjári var hann orðinn rauður í framan.
Okkur var svo sem slétt sama. Við erum löngu hætt að keyra bíl, komum með strætu ó bæinn, en við grípum hvert tækifæri sem gefst til að skemmta okkur svolítið. Það er svo mikilvægt fyrir fólk á okkar aldri!!!
Gunni gamli.
Hjúkkan gengur inn í eitt herbergið á deildinni og sér þar Gunna, einn gamlingjanna, þykjast vera að keyra bíl.
Hún spyr, "Gunni, hvað ertu að gera?
Gunni svarar, "ég er að keyra til Akureyrar!"
Hjúkkan óskar honum góðrar ferðar og kveður.
Næsta dag gengur hjúkkan inn í herbergið hjá Gunna sem er í þann mund að hætta að keyra sinn ímyndaða bíl.
Hjúkkan spyr, "Hvað ertu að gera núna?"
Gunni svarar, "ég er kominn á Akureyri og var að leggja bílnum."
"Frábært", svarar hjúkkan.
Síðan yfirgefur hún herbergið hjá Gunna og gengur yfir ganginn inn í herbergið hjá Daniel næsta öldungi, og kemur að honum að rúnka sér á fullu.
Hissa og hneyskluð spyr hún,
"Daníel hvað ertu EIGINLEGA AÐ GERA?!"
Daníel svarar, "ég er að ríða konunni hans Gunna, á meðan hann er á Akureyri!"
Tenglar
- Aðrar heimasíður
- 5 Tindar,5 Landshlutar, 1 Helgi.
- Amma Dreki
- Berg/Anna Dóra og Jobbi
- Bibba prjónakona
- Dalselurinn
- Kolla Gretars
- Stórfrænkan myndir frá Ólafsfirði
- Sævör og co
- Unna Mæja
- Unnur Stella
- Valli hreppari
- Barnasíður
- Dagbjört Fjóla, dóttir Þórunnar og Péturs
- Emilía Snærós/barnabarn Bjarkar
- GMx2 Jóhannssynir.
- Guðný Rún, barnabarn Bjarkar
- Heiðrúnar börn.
- Júlíana Rós og Jens Heri.
- Bóndinn
- Bóndi.is
- Búi, fjárræktarfélag
- Búvest
- Dalsmynni sf heimasíða
- Landssamtök sauðfjárbænda
- Smalahundafélag Snæfellsnes og Hnappadals
- Ég les
- Anna Kristjánsdóttir/blogspot
- Baggalútur
- Ella Dís
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júlíus/fiskidagakóngur
- Kaninn/Ásgeir Páll
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Slauguspjall
- Steinunn Ólína
- Vefsíða Júlla
- Fróðlegar síður.
- Andrea.is
- Áskot/Hreins og Örnu
- Enskusíða.
- Google Translate
- Grannar
- Hálsaból
- Íslendingabók
- Íslensk mannanöfn.
- Málfræðisíða
- Okur Dr. Gunna
- Pressan
- Heimabæirnir.
- 625.is
- Grundarfjörður
- Ólafsfjörður
- Matur, jammí.
- Hollar mataruppskriftir.
- Hvað er í matinn?
- Lambakjöt.
- Matarbitinn
- Matseld.
- Nóatún, uppskriftir
- Samtök, hin og þessi.
- A.D.H.D. samtökin.
- Félag einhverfra
- Foreldra og styrktarfélag greiningarstöðvarinnarl
- Parkinsonsamtökin
- Sjónarhóll
- Skólar og tómstundir
- Borgarholtsskóli
- Eden
- Fjölbrautaskóli Snæfellsnes
- Grunnskóli Grundarfjarðar
- Tónskóli Grundarfjarðar
- Uppl. um skátastarfið
Frúin
Um:
Frúin býr í sveit, á mann og þrjú afkvæmi, dekraðan kött og stofuhund, annan kött sem fær ekkert að borða og annan hund sem geltir að álfum. Frúin vinnur meðan að aðrir sofa og sefur meðan að aðrir vinna. Frúin ætlar að fara í framboð seinna meir. Frúin ætlar líka í megrun seinna meir, hvort það verður á dánarbeðinu kemur í ljós. Frúin stefnir einnig að því að ná sér í útskriftarhúfur af einhverri gerð.Uppáhalds bíómynd(ir):
Allar bíómyndir sem að innihalda hlátur, ást, fallega menn, eina feita konu og engar blóðslettur.Uppáhalds tónlist:
Pet shop boys, of course, hlusta á allt nema Árna Johnsen og Mercedes Club.Uppáhalds manneskjur:
Allar þær manneskjur sem sjá björtu hliðarnar í hverju sem er.Uppáhalds matur:
Frúin er annáluð matmanneskja. Maturinn þarf helst að innihalda rjóma, súkkulaði, sósu og sætindi.Eftirminnilegast:
Það borgar sig ekki að segja frá því!!
