Færslur: 2011 Mars

19.03.2011 09:08

Símtal um miðja nótt..því miður ekki að ofan..


Síminn hringdi í nótt á næturvaktinni og í eitt sekúndubrot þá hugsaði ég með mér að þetta væri örugglega Palli bróðir að hringja...Því hann var sá eini sem datt í hug að hringja í mann um miðja nótt.  Ja...hann kaus nú líka oft að vera öðruvísi en aðrir og því ekki að vaka þá um nætur og hringja nokkur símtöl J En svo flaug fortíðin framhjá, nútíðin kom...og hversu mikill töframaður sem hann var þá hefur hann ekki getað splæst í manni símtali að handan.  Og ég varð svo hræðilega vonsvikin .  Þetta var  bara vitlaust númer.  Ég sakna þess ennþá að fá ekki símtal á næturnar sem byrjar á kunnuglegri rödd...Hæ Didda..Þetta er Palli bróðir, og ég vissi að von var á nokkrum hlátursköstum.  Alveg mátti þó bóka það að hann spurði fyrst hvernig börnin hefðu það og síðan talaði hann um sín.  Við vorum sammála um það að okkar ríkidæmi væru börnin .  Og hvað hann var stoltur af sínum. 

Þann 24. eru 11 mánuðir síðan að hann yfirgaf okkur og  líklegast hafa hann og Bob Marley verið óaðskiljanlegir síðan.  Þeir gætu verið að syngja þetta lag...því Palli lifði lífinu sannarlega lifandi.

Don't worry a-bout a thing, 'cause ev-ry little thing gonna be all right.
Singing': "Don't worry about a thing, 'cause ev-ry little thing gonna be all right!"

Rise up this mornin'; smiled with the risin' sun.
Three little birds pitch by my doorstep
Singin' sweet songs of melodies pure and true; saying,
"This is my message to you-ou-ou."

Ég get alltaf hlegið þegar að einhver heldur því fram að við systkinin þrjú höfum verið þæg  og róleg sem börn, því mínar minningar innihalda hamagang, læti, ósjaldan skammir (sem mér hefur skilist sem móður að við áttum víst skilið) ótrúlega prakkarastrik og uppfinningar,  og endalausa gleði.  Fyrstu árin stjórnaði ég, Palli var alltaf tilbúinn að gera allt..og Biggi var tilvalið fórnarlamb..enda elti hann okkur hvert sem var.  Þetta voru dýrðartímar.  Þangað til að ég fór að velja stelpur fram yfir strákana, því þá snerist þetta við.  Þá stóðu þeir bræður saman á móti ógnvaldinu mér J 

En við urðum fullorðin...Ég hef stundum hugsað út í það hvort það hefði einhverju breytt með framtíð Palla ef hann hefðir fengið meiri aðstoð í skóla.  Ef hann hefðir fengið fleiri hrós í gegnum tíðina en færri skammir.  Ef kennararnir hefðu séð fyrir alla þá hæfileika sem áttu eftir að blómstra hjá honum..í stað þess að ítreka það að hann ætti að sitja kyrr og lesa og skrifa.    Enda skildi hann son minn afskaplega vel....Þeir voru svo ótrúlega líkir.  Palli þurfti að horfa á, hlusta eða sjá hlutina, þá var búið að stimpla þá inn.  Og í höfði hans var hafsjór af fróðleik.   

Það var svo ótrúlega margt sem að Palli gat gert.  Hann var töframaður í eldhúsinu og ekki þurftu gestirnir  að hafa áhyggjur af því að maturinn kláraðist af því að hann kunni sér yfirleitt ekki hóf í neinu.  Alltaf að elda rúmlega J Hann var góður iðnaðarmaður og verkfæri léku í höndunum á honum.  Hann hefði verið frábær sáttasemjari, því hann gat talað við alla, og gerði sko ekki mannamun.   Hann var mikill dýravinur,  var barngóður og alltaf til í að leika við krakkana.  Stakk svo af þegar að hann var búinn að gera þau arfavitlaus, og lagði sig. J  Palli hafði  þá snilligáfu að hann gat gert leiðinlega sögu af algjöru ævintýri.  Þar naut hann sín, í miðjum hópnum, með handapat og með allra augu á sér..og eftir því sem að hláturinn jókst hjá áhorfendum...því áhrifameiri urðu sögurnar.  Það vissu allir að meiri hlutinn þeirra var ósannur og hinn helmingurinn stórýktur...En bara það að hlusta á hann segja sögur...fékk mann til að gleyma sér í hlátrinum.  Ég naut þess að hlusta á hann segja sögur....jafnvel sömu söguna aftur og aftur ..því hún var aldrei eins.

En enginn er fullkominn.  Palli barðist við sinn sjúkdóm sem að lokum hafði yfirhöndina.  Líf ættingja er ekki alltaf dans á rósum þegar að vímuefnin eru með í för, og það fengu nánustu ættingjar vissulega að reyna á.  Baráttan á milli þess að elska Palla, en vera ósátt við það sem hann gerði þegar Bakkus var með í för. Endalaus togstreita.  Mörkin á milli þess að syrgja hann eða vera reið við hann fyrir að hafa látið þetta ske... Sorgin birtist á marga vegu...og allir syrgja á sinn hátt.  En svona er lífið..þú veist ekki hvað morgundagurinn ber með sér. 

En lífið hjá okkur hinum heldur áfram....Ég kvaddi fallegan bróðir alltof snemma...Bróðir sem lifði lífinu hátt og brosandi, stundum alltof hratt, tók oft á tíðum rangar beygjur og fór jafnvel einstefnugötur. En hann skildi eftir sig hafsjó af minningum um góðan mann, sem hélt fast í  barnið í sér.

Lífið á ekki að vera skáldsaga sem við fáum að gjöf, heldur saga sem við skrifum sjálf.  Og það má með sanni segja að þú hafir samið þína sögu sjálfur.....



 

  • 1
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 262075
Samtals gestir: 66868
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 14:54:20

Tenglar

Frúin

Um:

Frúin býr í sveit, á mann og þrjú afkvæmi, dekraðan kött og stofuhund, annan kött sem fær ekkert að borða og annan hund sem geltir að álfum. Frúin vinnur meðan að aðrir sofa og sefur meðan að aðrir vinna. Frúin ætlar að fara í framboð seinna meir. Frúin ætlar líka í megrun seinna meir, hvort það verður á dánarbeðinu kemur í ljós. Frúin stefnir einnig að því að ná sér í útskriftarhúfur af einhverri gerð.

Uppáhalds bíómynd(ir):

Allar bíómyndir sem að innihalda hlátur, ást, fallega menn, eina feita konu og engar blóðslettur.

Uppáhalds tónlist:

Pet shop boys, of course, hlusta á allt nema Árna Johnsen og Mercedes Club.

Uppáhalds manneskjur:

Allar þær manneskjur sem sjá björtu hliðarnar í hverju sem er.

Uppáhalds matur:

Frúin er annáluð matmanneskja. Maturinn þarf helst að innihalda rjóma, súkkulaði, sósu og sætindi.

Eftirminnilegast:

Það borgar sig ekki að segja frá því!!