Hugleiðingar
23.1.2010
Sunnudagur til leti
Þetta helgarfrí frúarinnar átti að fara í það að sitja og læra stærðfræði. Sem eru skilyrði þess að frúin útskrifist í vor. En einhvern veginn endar það svo að stærðfræði bókin opnast ekki. Í staðinn er gert eitthvað sem að alveg hefði getað beðið. Svo er líka óratími sem fer í afar uppbyggilega hluti. Eins og til dæmis facebook. Auðvitað tekur það tíma að sjá um uppskeruna í farmville og farmtown, svo þarf að gefa kettinum í petville og fiskunum í fishville. Svo má ekki gleyma því að það er nauðsynlegt að fletta yfir uppfærslur, og kommenta ef að maður nennir. Þarna er nú farinn heill dagur sem hefði átt að fara í stærðfræði grýluna. En ég geri þetta bara í næsta helgarfríi.
Helgin góð að öðru leiti. Þorramatur hjá smiðnum og fjölskyldu í gærkveldi. Góður matur og svo vel út látinn að við erum að fara aftur á eftir til að klára hann. Ekki slæmt það. Bóndinn náði meira að segja að stoppa i öðru húsi og smakka á landa. Sælusvipur sem að fylgdi því glasi. Kvöldið endar svo með norska þættinum. Snilld, þó ég muni aldrei hvað hann heiti. En enda þetta á myndum að heimilismeðlimum.
Hér eru heimilisdýrin endalaust sérvitur. Yngsti meðlimurinn, hún Guffa litla, fellur vel inn í þann hóp
Hér er Dísa Dreki búin að króa litlu inn í horn, og í hvert skipti sem að hún hreyfði sig þá hvæsti sú stóra. Núna er hún aftur á móti aðeins að eflast og farin að taka á móti. Jú, ekki bara taka á móti, heldur farin að elta þá stóru út um allt hús.
Hérna er Guffa á uppáhaldssvefn stað sínum. Frúin er nú ekki neitt ánægð með hann, enda hefur hún ósjaldan breytt forsíðunni, og ekki kann frúin að laga það.
Hér kemur svo ein af Blómu og Sprett, sem síðar reyndust vera Blómi og Sprettur. Hér eru þeir í nýja búrinu sem að þau feðgin smíðuðu um jólin. Og borða uppáhaldsmatinn sinn, bygg frá Dalsmynni. Já, það er dekrað við dýrin hér.
Þessi hér er sérstaklega fyrir hann Sjonna í Danaveldi. Þetta er hann tvíbiti. Sjonni bar þennann litla titt heim í göngunum, enda afar smár. Þegar að bóndinn ætlaði síðan að slátra honum, þá kom dóttirin askvaðandi, trítilóð, og sagði að það væri nú óþarfi að drepa hann, hann væri ekki nema tveir munnbitar. Bóndinn sleppti honum út, enda vanur að hlýða dóttirinni. Hann heitir nú tvíbiti, er geldur og bíður frekari dómsdags.
Hér er svo ein af þeim feðginum. Sátt við lífið og tilveruna, enda úti, þar sem að þeim líður best.
Endum svo á einni hrútamynd. Þetta eru þeir Höður, Klaki og Friðrik. Friðrik er geldur heimalingur og heldur að hann sé Kasanóva. Fyrir þá sem að ekki eru kunnugir, þá eru verða hornin á hrútunum svona þegar að þeir eru geldir.
Tenglar
- Aðrar heimasíður
- 5 Tindar,5 Landshlutar, 1 Helgi.
- Amma Dreki
- Berg/Anna Dóra og Jobbi
- Bibba prjónakona
- Dalselurinn
- Kolla Gretars
- Stórfrænkan myndir frá Ólafsfirði
- Sævör og co
- Unna Mæja
- Unnur Stella
- Valli hreppari
- Barnasíður
- Dagbjört Fjóla, dóttir Þórunnar og Péturs
- Emilía Snærós/barnabarn Bjarkar
- GMx2 Jóhannssynir.
- Guðný Rún, barnabarn Bjarkar
- Heiðrúnar börn.
- Júlíana Rós og Jens Heri.
- Bóndinn
- Bóndi.is
- Búi, fjárræktarfélag
- Búvest
- Dalsmynni sf heimasíða
- Landssamtök sauðfjárbænda
- Smalahundafélag Snæfellsnes og Hnappadals
- Ég les
- Anna Kristjánsdóttir/blogspot
- Baggalútur
- Ella Dís
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júlíus/fiskidagakóngur
- Kaninn/Ásgeir Páll
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Slauguspjall
- Steinunn Ólína
- Vefsíða Júlla
- Fróðlegar síður.
- Andrea.is
- Áskot/Hreins og Örnu
- Enskusíða.
- Google Translate
- Grannar
- Hálsaból
- Íslendingabók
- Íslensk mannanöfn.
- Málfræðisíða
- Okur Dr. Gunna
- Pressan
- Heimabæirnir.
- 625.is
- Grundarfjörður
- Ólafsfjörður
- Matur, jammí.
- Hollar mataruppskriftir.
- Hvað er í matinn?
- Lambakjöt.
- Matarbitinn
- Matseld.
- Nóatún, uppskriftir
- Samtök, hin og þessi.
- A.D.H.D. samtökin.
- Félag einhverfra
- Foreldra og styrktarfélag greiningarstöðvarinnarl
- Parkinsonsamtökin
- Sjónarhóll
- Skólar og tómstundir
- Borgarholtsskóli
- Eden
- Fjölbrautaskóli Snæfellsnes
- Grunnskóli Grundarfjarðar
- Tónskóli Grundarfjarðar
- Uppl. um skátastarfið
Frúin
Um:
Frúin býr í sveit, á mann og þrjú afkvæmi, dekraðan kött og stofuhund, annan kött sem fær ekkert að borða og annan hund sem geltir að álfum. Frúin vinnur meðan að aðrir sofa og sefur meðan að aðrir vinna. Frúin ætlar að fara í framboð seinna meir. Frúin ætlar líka í megrun seinna meir, hvort það verður á dánarbeðinu kemur í ljós. Frúin stefnir einnig að því að ná sér í útskriftarhúfur af einhverri gerð.Uppáhalds bíómynd(ir):
Allar bíómyndir sem að innihalda hlátur, ást, fallega menn, eina feita konu og engar blóðslettur.Uppáhalds tónlist:
Pet shop boys, of course, hlusta á allt nema Árna Johnsen og Mercedes Club.Uppáhalds manneskjur:
Allar þær manneskjur sem sjá björtu hliðarnar í hverju sem er.Uppáhalds matur:
Frúin er annáluð matmanneskja. Maturinn þarf helst að innihalda rjóma, súkkulaði, sósu og sætindi.Eftirminnilegast:
Það borgar sig ekki að segja frá því!!Eldra efni
- 2009
- Nóvember (6)
- Október (10)
- September (11)
- Ágúst (5)
- Júní (2)
- Maí (8)
- Apríl (17)
- Mars (16)
- Febrúar (16)
- Janúar (24)
- 2008
- Desember (20)
- Nóvember (24)
- Október (16)
- September (11)
- Ágúst (17)
- Júlí (8)
- Júní (4)
- Maí (12)
- Apríl (11)
- Mars (19)
- Febrúar (12)
- Janúar (16)
- 2007
- Desember (13)
- Nóvember (11)
- Október (11)
- September (14)
- Ágúst (12)
- Júlí (11)
- Júní (20)
- Maí (16)
- Apríl (7)
- Mars (15)
- Febrúar (7)
- Janúar (12)
- 2006
- Desember (9)
- Nóvember (12)
- Október (9)
- September (6)
- Ágúst (7)
- Júlí (7)
- Júní (9)
- Maí (20)
- Apríl (28)
- Mars (25)
