Hugleiðingar
21.1.2010
Gleðilegt nýtt ár !!
Já, það var þá loksins að frúin settist niður við skriftir. Búið að taka langan tíma og er ekki nokkur afsökun sem hægt er að finna fyrir því. Hef bara ekki fengið heilasellurnar til að virka. Vil byrja á því að bjóða ykkur velkomin inn í árið 2010, árið sem að við munum alltaf koma til með að muna eftir. Svona eins og að ég man alltaf eftir vetrinum 1994-95. Þá var ég með orkuboltann minn hann Jóhann Skúla innanborðs, og það snjóaði allan veturinn. Frúin þurfti að byrja alla morgna á því að kappklæða frumburðinn og svo var rennt sér á þotu niður afleggjarann, því hann var ófær í langan tíma. Þá voru snjósleðamenn glaðir. Ja, þeir fáu sem að áttu sleða, því 2007 fílingurinn var ekki alveg kominn í landann. En svona er þetta.
Þar sem að klukkan er rúmlega sex að morgni á þessarri annars spjallmiklu næturvakt, þá verða skrifin stutt. Ætla þó að lofa því að setjast oftar við bullskriftir :O) Ætla að skella hér inn þrem myndum af fjárhúsunum, sem að bóndinn á Mýrum tók uppá því að byggja á því herrans ári 2009. Þegar að einn lítill nagli kostaði meira heldur en tyggjókúla. Já, það má segja að við höfum farið langt fram úr fjárframlögum frúarinnar. En með því að tæma undan öllum koddum, losa smáklinkið úr kökuboxum, fara í leynisjóð húsfrúar, tæma sparisjóðsbækur, skera niður bjórkvóta bóndans og láta heimilismeðlimi drekka vatn með matnum, þá hafðist þetta.
Og þvílíkur munur. Bóndinn brosir allan hringinn enda kóngur í ríki sínu þarna úti, laus við mal frúarinnar og icesafe umræðu í útvarpinu. Það á eftir að klæða húsin að innan og einnig að klára ýmislegt, sem hægt er að gera með tíð og tíma. Enda bóndinn ekki kallaður sérvitrungur fyrir ekki neitt. Skipulag, skipulag. Myndir af byggingunni, frá byrjun og til enda, eru nú komnar í albúmið á síðunni. Endilega skoða.
Árið
Tenglar
- Aðrar heimasíður
- 5 Tindar,5 Landshlutar, 1 Helgi.
- Amma Dreki
- Berg/Anna Dóra og Jobbi
- Bibba prjónakona
- Dalselurinn
- Kolla Gretars
- Stórfrænkan myndir frá Ólafsfirði
- Sævör og co
- Unna Mæja
- Unnur Stella
- Valli hreppari
- Barnasíður
- Dagbjört Fjóla, dóttir Þórunnar og Péturs
- Emilía Snærós/barnabarn Bjarkar
- GMx2 Jóhannssynir.
- Guðný Rún, barnabarn Bjarkar
- Heiðrúnar börn.
- Júlíana Rós og Jens Heri.
- Bóndinn
- Bóndi.is
- Búi, fjárræktarfélag
- Búvest
- Dalsmynni sf heimasíða
- Landssamtök sauðfjárbænda
- Smalahundafélag Snæfellsnes og Hnappadals
- Ég les
- Anna Kristjánsdóttir/blogspot
- Baggalútur
- Ella Dís
- Jóna Á. Gísladóttir
- Júlíus/fiskidagakóngur
- Kaninn/Ásgeir Páll
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Slauguspjall
- Steinunn Ólína
- Vefsíða Júlla
- Fróðlegar síður.
- Andrea.is
- Áskot/Hreins og Örnu
- Enskusíða.
- Google Translate
- Grannar
- Hálsaból
- Íslendingabók
- Íslensk mannanöfn.
- Málfræðisíða
- Okur Dr. Gunna
- Pressan
- Heimabæirnir.
- 625.is
- Grundarfjörður
- Ólafsfjörður
- Matur, jammí.
- Hollar mataruppskriftir.
- Hvað er í matinn?
- Lambakjöt.
- Matarbitinn
- Matseld.
- Nóatún, uppskriftir
- Samtök, hin og þessi.
- A.D.H.D. samtökin.
- Félag einhverfra
- Foreldra og styrktarfélag greiningarstöðvarinnarl
- Parkinsonsamtökin
- Sjónarhóll
- Skólar og tómstundir
- Borgarholtsskóli
- Eden
- Fjölbrautaskóli Snæfellsnes
- Grunnskóli Grundarfjarðar
- Tónskóli Grundarfjarðar
- Uppl. um skátastarfið
Frúin
Um:
Frúin býr í sveit, á mann og þrjú afkvæmi, dekraðan kött og stofuhund, annan kött sem fær ekkert að borða og annan hund sem geltir að álfum. Frúin vinnur meðan að aðrir sofa og sefur meðan að aðrir vinna. Frúin ætlar að fara í framboð seinna meir. Frúin ætlar líka í megrun seinna meir, hvort það verður á dánarbeðinu kemur í ljós. Frúin stefnir einnig að því að ná sér í útskriftarhúfur af einhverri gerð.Uppáhalds bíómynd(ir):
Allar bíómyndir sem að innihalda hlátur, ást, fallega menn, eina feita konu og engar blóðslettur.Uppáhalds tónlist:
Pet shop boys, of course, hlusta á allt nema Árna Johnsen og Mercedes Club.Uppáhalds manneskjur:
Allar þær manneskjur sem sjá björtu hliðarnar í hverju sem er.Uppáhalds matur:
Frúin er annáluð matmanneskja. Maturinn þarf helst að innihalda rjóma, súkkulaði, sósu og sætindi.Eftirminnilegast:
Það borgar sig ekki að segja frá því!!Eldra efni
- 2009
- Nóvember (6)
- Október (10)
- September (11)
- Ágúst (5)
- Júní (2)
- Maí (8)
- Apríl (17)
- Mars (16)
- Febrúar (16)
- Janúar (24)
- 2008
- Desember (20)
- Nóvember (24)
- Október (16)
- September (11)
- Ágúst (17)
- Júlí (8)
- Júní (4)
- Maí (12)
- Apríl (11)
- Mars (19)
- Febrúar (12)
- Janúar (16)
- 2007
- Desember (13)
- Nóvember (11)
- Október (11)
- September (14)
- Ágúst (12)
- Júlí (11)
- Júní (20)
- Maí (16)
- Apríl (7)
- Mars (15)
- Febrúar (7)
- Janúar (12)
- 2006
- Desember (9)
- Nóvember (12)
- Október (9)
- September (6)
- Ágúst (7)
- Júlí (7)
- Júní (9)
- Maí (20)
- Apríl (28)
- Mars (25)

